Grammatek hlaut nýverið í annað sinn styrki úr hagnýtingarsjóðnum Skerfi. Annar styrkurinn er til þróunar á Leslingi, forriti sem gerir notendum kleift að nota íslenska talgervla í öllum forritum Windows stýrikerfisins. Hitt verkefnið er samstarfsverkefni með Hljóðbókasafni Íslands, framhald á þróun íslensks STEM-lesara til framleiðslu á hljóðbókum í stærðfræði og öðrum raungreinum.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra afhenti styrki til margra spennandi verkefna við hátíðlega athöfn í Iðnó. Sjá nánar á vefsíðu Almannaróms.

Mynd: Elísabet Blöndal