Mikill fjöldi íslenskra barna og ungmenna glímir við lestrarörðugleika af einhverju tagi, til dæmis sökum lesblindu, sjónskerðingar og/eða ADHD. Fyrir þennan hóp er mikilvægt að hlusta á námsefni, annað hvort eingöngu eða sem stuðning við hefðbundinn lestur. Símarómur les íslenska texta upphátt af snjalltækjum eins og iPad og getur þannig nýst vel í skólastofunni til þess að auka sjálfstæði nemenda og að minnka álag á kennara og annað starfsfólk.
Nú býður Grammatek upp á miðlægan aðgang að Símarómi fyrir skóla sem nota tækjaumsjónakerfi eins og Intune eða Jamf. Minni skólar og stofnanir, sem ekki hafa miðlægt tækjaumsjónakerfi, geta einnig fengið aðgang beint gegnum Grammatek.
Hafið samband við anna@grammatek.com til þess að fá nánari upplýsingar, sjá einnig simaromur.is
Hlustun er líka lestur!