Notkunarskilmálar smáforrita
Síðast uppfært: 3. ágúst 2026
Notkunarskilmálar þessir gilda um notkun smáforritanna Símaróms og Leslings („Hugbúnaðurinn”) frá Grammatek ehf., kt. 641018-0820, Fjólulundi 4, 300 Akranesi („Grammatek”, „við”), óháð því hvernig Hugbúnaðarins var aflað.
Þeir gilda til viðbótar við þá skilmála sem gilda um kaupin. Fyrir kaup í App Store frá Apple, Google Play eða Microsoft Store gilda skilmálar viðkomandi verslunar um kaupin. Fyrir leyfi sem keypt eru beint frá Grammateki gilda Leyfisskilmálarnir. Ófrávíkjanleg ákvæði neytendalöggjafar haldast óbreytt.
Skilmálarnir eru gefnir út á íslensku og ensku. Komi upp misræmi milli útgáfna gildir íslenska útgáfan.
1. Notkunartakmarkanir
Óheimilt er að:
- sniðganga eða reyna að sniðganga virkjunartakmörk eða gildislok leyfa;
- vendismíða (e. reverse engineering), afþýða (e. decompile) eða breyta Hugbúnaðinum, nema að því marki sem ófrávíkjanleg lög heimila;
- nota Hugbúnaðinn eða niðurstöður hans til að þróa vöru í samkeppni við hann;
- nota niðurstöður til að þjálfa, fínstilla eða bæta á annan hátt vélræn líkön.
2. Vélrænar niðurstöður
Hugbúnaðurinn framleiðir vélrænar niðurstöður, svo sem talgervingu og ljóslestur (OCR). Slíkar niðurstöður geta innihaldið villur eða ónákvæmni. Notandi ber ábyrgð á að yfirfara niðurstöður með tilliti til nákvæmni og þess hvort þær henti fyrirhugaðri notkun áður en byggt er á þeim. Óheimilt er að nota niðurstöður einar og sér sem grundvöll ákvarðana sem hafa réttaráhrif eða önnur veruleg áhrif á einstakling.
3. Raddir
Raddir Hugbúnaðarins byggjast á upptökum raunverulegra raddgjafa sem hafa veitt leyfi fyrir notkun raddar sinnar til talgervingar. Óheimilt er að nota niðurstöður til að líkja eftir raddgjöfunum eða öðrum raunverulegum einstaklingum, til að vekja þá trú að raunveruleg manneskja hafi sagt eitthvað sem hún sagði ekki, eða til að gefa í skyn stuðning einstaklings. Öll notkun niðurstaðna til blekkingar, svika, ærumeiðinga eða áreitni er óheimil.
4. Persónuvernd
Vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við Hugbúnaðinn er lýst í persónuverndarstefnu okkar.
5. Samskipti
Grammatek ehf.
Kt. 641018-0820
Fjólulundi 4, 300 Akranesi
Netfang: info@grammatek.com