Bylting í íslenskri máltækni: Grammatek kynnir íslenskan talgervil fyrir iPhone og iPad!

Símarómur er fyrsti íslenski talgervillinn sem keyrir á iOS stýrikerfinu. Appið tengist aðgengisforritum eins og Voice Over og Spoken Content, einnig geta öll forrit sem nýta raddir stýrikerfis nýtt rödd Símaróms til upplesturs á íslenskum texta.

Símarómur hefur verið í boði fyrir Android tæki síðan vorið 2024 og er í notkun hjá hundruðum notenda.

Helstu kostir Símaróms:

  • 🎯 Íslenska: Fyrsti íslenski talgervillinn fyrir iPhone/iPad
  • 🔊 Hágæða talgerving: Náttúrulegur og skýr framburður
  • 📱 Kerfissamþætting: Virkar með öllum öppum sem geta nýtt talgervil kerfis
  • Aðgengi: Styður Voice Over (iPhone), Talk Back (Android) og fleiri aðgengisforrit

Sjá nánar á síðu Símaróms