Símarómur er íslenskt talgervilsapp með talgervilsröddum sem virka sem raddir stýrikerfis á iPhone, iPad og Android tækjum. Appið tengist aðgengisforritum eins og Voice Over og Spoken Content (iOS), Talk Back og Accessibility Suite (Android). Einnig geta öll forrit, sem nýta raddir stýrikerfis nýtt raddir Símaróms. Með hjálp Símaróms getur tækið þitt nú lesið alla íslenska texta.

Sjá nánar: Nánar um Símaróm